Björk

Björk

14.09.2006 14:20:27 / björk

Supernova

 Spenntur - Á móti sól

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

OMG !! Lokaþáttur Rockstar: Supernova var í gær. Þetta var ekkert smá spennandi og sérstaklega þegar Lukas og Dilana voru bara tvö eftir og Gilby Clarke bað um auglýsingar.

 

1. Lukas

2. Dilana

3. Toby  

 

    4.  

heart  Magni heart

Nettur árangur hjá kallinum!

Þó það séu alveg hverfandi líkur á því að Lukas, Magni eða einhver af þessum rokkurum lesi þetta óska ég þeim til hamingju með árangurinn.

 

 

 

 

 

 

Ég get ekki sagt annað en að ég sé fegin að hann Magni okkar skuli ekki vera í þessu bandi

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 11:51:47 / björk

♥ ♥ focking sjálfstæð ♥ ♥

Geislinn í vatninu - Hjálmar

Ég sit hérna veik við cp hjá mömmu etandi harðfisk og drekkandi Panodil Hot. En það skiptir engu máli þar sem ...

… ég á afmæli í dag

loksins orðin focking sjálfstæð 

Þetta er svona einn af þeim hlutum sem voru sko mikið tilhlökkunarefni þegar maður var lítill ásamt því að fá bílpróf ..  *hóst*  sem ég er ekki búin að taka *hóst* ..  og að byrja í menntaskóla.

Busaballið var síðastliðinn miðvikudag og ég hélt lítið fyrirpartý. Þetta lukkaðist alltsaman bara mjög vel. Maður drakk ekki of mikið og var bara í gúddí. Það var hinsvegar frekar kjánalegt þegar Dr. Miza & Mr. Handsome voru að spila. Söngvarinn hvarf svona af og til. Ástæðan var einfaldlega sú að hann gat ekki staðið í fæturna. En já að mínu mati var toppur kvöldsins þegar Jeff Who? tóku Barfly.

En þó að maður sé veikur heima og eigi afmæli hefur maður alveg nóg að gera. Ég er t.d. að fara í útskriftarveislu hjá Kristínu Maríu frænku minni í kvöld. 23 ára og orðin flugmaður. Nettur árangur hjá gellunni. Svo ætlaði ég að gera eitthvað með henni Dísu í kvöld en sé ekki fram á að geta farið að djamma eða neitt í þeim dúr í því ástandi sem ég er í. Ætli maður taki sér ekki bara Sjálfstætt fólk eða Engla alheimsins í hönd og slappi bara af á þessum merkilegu tímamótum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 00:11:48 / björk

Allt og ekki neitt

Truly, Madly, Deeply - Cascada

Síðustu dagar eru búnir að vera svolítið skrítnir. Stelpurnar eru farnar og skólinn byrjaður og því í nógu að snúast. Ég fór t.d. í Þingvelli í fyrradag með lífsleiknis1112. Þetta var bara hin fínasta ferð og við ekkert smá heppin með veður. Svo fengum við að fara niður í virkjun !!! Ekkert smá mikið stuð, reyndar villtist Auður og einhverjir strákar í göngunum en þau fundu leiðina út.

Busadagurinn/ballið og afmælið mitt er alveg að koma. Ég ákvað að skella þessu öllu bara saman í eina kássu og halda bara fyrir-afmælis-busa-partý fyrir busaballið.

Nánari upplýsingar um ballið:

Miðvikudagurinn 6. september á Brodway. Þeir sem munu spila á ballinu eru ... Jeff who ? , Dr. Miza & Mr. Handsome og Jakobínarína en Dj S.T.E.F. og Dj Páll Óskar munu einnig sjá um að skemmta liðinu. Ef þið eruð ekki búin að tryggja ykkur miða þá er enn verið að selja í Sómalíu og kostar 2000 kr. fyrir okkur sem erum í NFMH en 2500 fyrir hitt pakkið.

♥ sjáumst á ballinu ♥

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 20:44:31 / björk

Verslunarmannahelgin

Þessi helgi er búin að vera mjög næs. Ég drakk reyndar nánast ekkert þar sem ég er á verkja og bólgueyðandilyfjum. En helgin var c.a. svona  ...

 Föstudagurinn:

- Ég vaknaði og dreif mig í ræktina

- Við Bjössi fórum í Kringluna og versluðum föt og ýmsa ónytsamlega hluti.

- Lagt af stað norður í Dæli

- Allir á rassgatinu þegar við komum

- Tjaldað og skellt sér í fjörið úúújeeehhh.

 

 

Laugardagurinn:

- Um “morguninn” (kl. 4 eða svo )  var farið í sund á Hvammstanga til að losna við mygluna.

- Grillað á tjaldstæðinu, bjórkútarnir dregnir fram,  partýið byrjað með Stuðmenn stillta í botn.

 

 

Sunnudagurinn:

- Fór á fætur um 2.  

- Pakkaði niður draslinu og svo var lagt af stað heim.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 20:35:41 / björk

Hætt í pásu

Þar sem það styttist óðum í það að gellurnar fari út þá ætla ég mér að lífga aðeins upp á þessa síðu ... byrja að blogga og vonandi setja inn einhverjar myndir og svoleiðis.

Ég nenni ekki að fara að telju upp allt það sem ég er búin að gera í sumar en hér koma nokkrir punktar ...

 Mikið búin að vera að vinna

 

Allt of mikil drykkja á 17. júní. Litli bróðir (15ára) barinn af gaurum yfir 20, fór upp á slysó nefbrotinn 

 

Fór á færeyskadaga á Ólafsvík. Geðggjað stuð og mikið djammað

 

Unnur komin frá Nýjasjálandi

Mikið djamm-sumar

 

 

Nýjasta:

Matarklúbbur hjá Helenu

Bæjardjamm

 

Kveðjuboð hjá Lilju

Pirates of the Caribbean 2

 

 

Frammundan: 

30. júlí Sigurrós tónleikar á Miklatúni

5 og 6 ágúst er verlsunarmannahelgin

12 og 13 ágúst er gay pride og eitthvað á Dalvík

19 og 20 ágúst er menningarnótt og eikkerir trance/techno tónleikar í kaplakrika

2 og 3 september er ljósanótt í Reykjanesbæ

Ég sá link á einni síðu sem ég var að skoða. Þetta er svona forrit segir hvaða celeb þið eruð lík. Meikar ekki alveg sens tékkið á síðunni hér fyrir neðan. En ég er lík ...

   BoA

          Milla Jovovich

          Audrey Hepburn

Sjooor að ég sé eitthvað lík þeim !!!

http://myheritage.com/FP/Company/tryFaceRecognition.php

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 17:58:28 / björk

Pása

Þessi síða er komin í pásu ! Ég nenni ekki að blogga í sumar :$ Ég lofa að blogga eitthvað í vetur svo að litlu skiptinemarnir mínir geti aðeins gluggað inn í líf mitt.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 16:16:59 / björk

06.06.06.

Skemmtileg dagsettnig :D

 

Maður hefði kannski átt að næla sér í miða á tónleikana með Bubba eða fara á Omen í kvöld. Kjánaskapur er þetta í manni. En það þýðir víst ekki að fást um það. Valdís kom heim frá Lanzarote í dag eftir 2 vikna dvöl :haha: En er ekki orðið löngu tímabært að hittast og gera eitthvað skemmtilegt ? Hvað segið þið stelpur um að safna öllu liðinu saman og fara í keilu og/eða Pool á næstunni ?

(Endilega látið vita ef þið eruð til í að gera eitthvað á næstunni og þá hvað og hvenær)

 


Ég hlakka svo til föstudagsins. Ég er ekki að fara að vinna og get sofið út :haha::haha: og svo ætlum við gellurnar í vinnunni að fara út að borða á Vegamótum og djamma ;)Það verður fjör en kannski ekki alveg það sniðugasta í heimi þar sem við erum flestar að fara að vinna morgunninn eftir. En við mætum þá bara geggjað hressar og sætar í vinnuna kl. 08:30 morgunninn eftir :haha:

 

 

/Björk;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 17:48:14 / björk

Vinna, vinna, vinna, skólinn og smá djamm

Ég var að fá alveg frábærar fréttir í dag :D Unnur kemur til baka frá Nýjasjálandi in 38 days :D hlakka ekkert smá til :haha: ekki það að ég samgleðjist henni ekki yfir því að vera þarna, hún er bara búin að vera svo lengi :$ Miss you sooo

Ég er ekki búin að gera neitt það mikið upp á síðkastið. Ég fór í Eurovisionpartý til Ingsa á laugardeginum fyrir viku. Nett partý ;) Á mánudeginum náði ég svo í einkunnirnar. Þær komu mér ekkert svakalega mikið á óvart ... nema hvað ég drullu féll í líffræði :$ En nóg um skólann í bili. Svo byrjaði ég að vinna síðastliðinn þriðjudag. Þessi vinna er allt öðruvísi en ég hélt, ekki að það hún sé leiðileg bara skrítin. Það er margt skemmtilegt við þessa vinnu. Skemmtilegt starfsfólk og þannig en mesta snildin er gamla fólkið á alsæmerdeildinni :haha: þau eru svo miklar dúllur. En annað mál. Sumarskólinn byrjar á morgunn. Stærðfræði.. ekki til betri leið til að eyða sumrinu :| Um að gera ef einhver er fallisti í stæ303 eða vill stitta sér stundir að fara í sumarskólann í háskólanum :haha: I need some company :cry: HELP !

/Björk


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 14:33:23 / björk

Lokaball og Eurovision

Eins og flestir vita lauk prófunum í MH síðastliðinn þriðjudag. Ég var reyndar búin í prófunum á fimmtudeginum en það er annað mál. Þriðjudagurinn var frekar óvanalegur dagur. Veðrið var svo gott að ég nennti ekki í ræktina. Ég ákvað að hjóla frekar út á Seltjarnanes og til baka ... mjög hressandi ykkur að segja ;) Eftir þessa hressandi hreyfingu hitti ég Ásdísi og ég veit ekki hvað hljóp í okkur. Við vorum eitthvað frekar mikið skrítnar þennan dag :haha: Eftir að hafa verið að flippa eitthvað með Ásdísi fór ég heim að gera mig til fyrir lokaballið en svo trilluðum við Ásdís okkur í fyrirpartý upp í Grafarvog hjá Valdísi gellu ;) Það gerðum við margt skemmtilegt en mesta snildin var sú að ein okkar fékk þá klikkuðu hugmynd að fara á trampólínið, það var mjög skrautlegt (enda búnar að drekka) :lol: en það var bara gaman. Svo fórum við líka í singstar og eitthvað fleira. Allavega heppnaðist fyrir partýið vel. Ballið var ekkert mikið síðra. Var reyndar frekar lítið með stelpunum :( en það er nú ekki mjög oft sem það gerist :$

 

 

 

 

 

 

Eurovision – hvað getur maður nú sagt ?Ein misheppnaðasta keppni ever þetta árið :D Það var byrjað að púa á okkur áður en lagið byrjaði 8| Ég skil ekki afhverju fólk tekur þessu svona illa ! Silvía Nótt var bara að segja sannleikann á þessum blaðamannafundum ... sad but true :!::!: En annars þá verður partý hjá Ingsa á laugardaginn eftir Eurovision ;) bara eitt að lokum .... GO Finnland og Danmörk ;) 

 

 

/Björk ;) 


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 13:29:04 / björk

Sumarfrí

Það er eins og þessi önn sé búin að vera nokkrar aldir að klárast, sérstakleg eftir að prófin byrjuðu. Á meðan sólin sýndi sína bestu hlið og sleikti mannfjöldann niður í bæ þá sat ég inni og lærði líffræði. Ég stalst reyndar aðeins til þess að láta sólina sleikja mig líka.Ég fór með henn múttu niður í bæ á kaffihús. Ég hafð i aldrei farið inn í "Gyllta köttinn" (second hand shopp) og stóðst ekki freystinguna þannig að ég ákvað að kýkja aðeins inn. Þessi dvöl mín þar var aðeins lengri en hún átti að vera þar sem ég mátaði eina átta kjóla, sem betur fer fann ég þann rétta í þessari hrúu. Hver veit hvor ég mæti í honum á lokaballið ;)

Þar sem ég er búin í lokaprófunum og komin í sumarfrí þá ætla ég mér að ljúka við þetta bévítans bílpróf og fara í ökuskóla nr. 2 í kvöld og á morgunn. Svo ætla ég mér bara að liggja í leti um helgina. Kannski ekki alveg. Er að pæla að laga þessa visnuðu vöðva mína sem ég öðlaðist í prófarkalestrinum og drífa mig í hreyfingu. Það þýðir ekkert að drolla við þetta enda grafalvarlegt mál. Maður verður nú að koma sér í betra form fyrir sumarið ekki satt ;)

Ég var að skoða gamlar skólabækur.. þetta hljómar undarlega en ég á allar mínar bækur frá því ég byrjaði í grunnskóla :lol: bróðir minn hefur verið mjög duglegur að notfæra sér það enda var leikurinn til þess gerður. En já ég var að skoða gamlar bækur og rakst á ljóð og smásögur sem ég samdi þegar ég var í 9. og 10. bekk. Sumar góðar og aðrar nokkru slakari. Kannski að maður skelli inn link með einni sögu eða svo;)

En ég má nú ekki gleyma að mynnast á  lokaballið í MH :!: Það verður haldið á Pravda þriðjudaginn 16. maí.Þar mun Dj Palli sjáum að þeyta skífum. Miðasölunni er lokið en er ekki bara málið að fjölmenna á ballið, hrista á sér rassinn ´n show what you got ;) hehe

Þessar "pælinar" eru komnar útí eitthvað kjéééftæði þannig ég slútta þessu bara hér

/Björk


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 19:41:44 / björk

Sumar !

Sumarið er komið :D Veðrið er reyndar búið að vera frekar undarlegt upp á síðkastið, hitinn komst t.d. upp í 12°C í dag sem er fremur mikið miðað við að það er maí. En þar sem prófin eru byrjuð er lítið að frétta af mér annað en að ég er búin að taka þrjú próf. Gekk ekki alveg nógu vel :$ Ég skil þetta ekki. Sama hvað ég eyði miklum tíma í að reyna að troða þessum hlutum í hausinn á mér þá virðist það ekki virka. Vinnan sést allavega ekki á einkununum :| En annað mál. Ég var að fá vinnuplanið mitt fyrir sumarið. Ég á frí aðrahverja helgi, á 17.júní, menningarnótt og um verslunarmannahelgina ;) ekkert smá sátt. Ég fer svo kannski á þjóðhátíð í Eyjum. Það er bara einn pinku lítið stór galli ... ég verðu umkringd famelíunn og ég má ekki taka neinn með mér :( það er ekki að gera sig nema ... er einhver að fara á þjóðhátíð ? Það væri geggjað :!: Það eru næstum þrjú ár síðan ég fór síðast til Eyja og það var með fótboltanum. Eyjar er staðurinn ;) a.m.k. þegar það er gott veður.

Ég var að pæla smá. Ætti maður nokkuð að vera að djamma mikið í sumar. Er ekki bara málið að standa sig í vinnunni, stærðfræðinni, lesa Sjálfstættfólk fyrir næsta íslensku áfanga og hætta þessu rugli og fara að gera eitthvað að viti? Bara svona að pæla.

/Björk ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 18:05:58 / björk

Afmæli og lokaprófin

Síðasti virki skóladagurinn var síðastliðinn föstudag.

 

Föstudagurinn var frekar spes. Eins og alla föstudaga þá á ég ekki að mæta í skólann fyrr en kl 12:40 en málið er það að útskriftarnemarnir áttu að dimmitera í tímanum fyrir hádeigishlé þannig að ég mætti bara hress upp í skóla um tíu og chillaði bara til svona ellefu en þá hófst dimmiternigin. Váá hvað atriðið með pósusurnar hjá stærðfræðikennurunum í 80´ fötum var fyndið. Ég var nánast köfnuð úr hlátir. Eftir dimmiterniguna þá fór ég með pabba að ná í gleraugun mín. Ég er ekkert smá ánægð með þau :D en já svo fór ég upp í skóla og náttúrulega flestir mjög hissa að sjá mig með gleraugu. Svo fór ég bara eitthvað að chilla með Ásdísi svo fórum við með systur hennar ,Hjördísi, niður í bæ og tilltum okkur á Oliver. Það var rosalega næs en þar sem við Ásdís vorum búnar að ákveða að fara á Scary movie 4 í tólf bíói nenntum við ekki að vera þarna neitt lengi. Við trilluðum bara í bíó og ég hitti óvenju mikið af fólki sem ég þekki ! Myndin var bara mjög góð .. samt svolítið langdregin á köflum ! Svo í gær þá fór ég að læra efnafræði .. jess uppáhaldið mitt :D svo fórum við Ásdís upp í Kringlu að kaupa afmælisgjöf handa Írisi. Þar sem ég bý á tveimur stöðum var ég ekki með þaðsem mig vantaði fyrir kvöldið þannig aðég fór upp í Mosó og svona 20 mínútum eftir að ég kom heim þá gaut Birta (tíkin mín) fjórum hundum og einni tík. Það var náttúrulegabara æðislegt :D Um tíu fórum við Ásdís til Írisar og þetta partý heppnaðist bara mjög vel. Það var bara eitt... ég helena og Imma vorum þær einu sem vorum fullar og það var ekki nógu mikið partý stuði fólk en það skiptir ekki máli. Svo vakanði ég heima hjá Írisi í morgun ógeðslega migluð og já Imma var dauð í sófanum og ég hafði þrifið upp ælu eftir einn ónafngreindan aðila fyrr um nóttina ... þegar að ég var enn full .. sniðugt :haha: Ég Íris og Helena fórum í smá göngutúr til að kaupa egg og safa. Þegar að við vorum búnar að rölta út um allt Breiðholtið til að finna búð sem var opin fórum við heim til Írisar að baka rónabrauð! Já ég sagði rónabrauð .. það er brauð sem er steikt upp úr eggi og síðan er settur kanilsykur og síróp á það. Íris og Auður voru alveg fæddar í þetta. Það voru síðan nánast allir að fara að vinna þannig að það var ég, Íris, Lilja og Imma eftir. Við leigðum mynd og höfðum það svo cosy.

 

En annað mál er það eru tveir dagar í að lokarpófin byrji. Ég fer ekki í nema fjögur próf þarsemég er búin með íslenskuna :haha: og svo er ég komin í sumarfrí á fimmtudeginum í þarnæstu viku :D Hlakka ekkert smá til :D:D

En nóg af mér í bili.

 

/Björk 0



 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 15:54:37 / björk

Titanic II

Ég var að vafra um á netinu svona eins og gengur þegar manni leiðist, rétt eins og þú ert að lesa þetta merkilega blogg, þá fór ég á kvikmynd.is og var að skoða myndbönd og rugl á þessari kjánalega síðu. Rakst ég ekki bara á teiler úr Titanic II 8| mér brá náttúrulega ekkert smá mikið !!! Ég meina Jack er dáinn ... eða hvað 8| Jack is back ;) ég veit að þetta er ekkert smá rugl en lítið á björtu hliðina Leonaro DiCaprio er aftur orðin sætur :D ég mæli með því að þið skoðið þennan treiler. Farið bara inn á kvikmynd.is og á Titanic II. Þetta er snildarlega aulalegt. NEIIIII þetta er bara rugl :!: Fyrst þegar ég sá þetta trúði ég þessu alveg. En málið er það að þetta er bara eitt stórt gabb !! Þetta eru brot úr mörgum myndum með DiCaprio. T.d. þá er sýnt úr Romero og Juliet! Ég hélt í alvöru að þeir væru búnir að missa vitið ! "Hvernig er hægt að leggjast svona látt" hugsaði ég með mér. Titanic II þetta meikaiði ekkert sens !!!

Ég er komin með gleraugu :( ég veit sad but true !  Ég hef alltaf verið frekar skrítin þegar að ég er að keyra og að læra fyrir próf .. pabbi segir að ég glanni mikið og ég hef aldrei skilið neitt í honum en þegar við fórum saman að sækja gleraugun hans þá nefndi ég þetta við hann og við lérum bara pannta tíman hjá Rüdige og viti menn ég er með sjónskekkju og komin með gleraugu með + styrkleika !!

 

En nóg af mér í bili

 

 

 

/Björk ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 14:16:19 / björk

Voðalega ómerkilegar pælingar

Þetta er ekki hægt. Við stelpurnar erum alveg hættar að hittast. Við verðum að bæta eitthvað úr þessu eftir lokaprófin. Ég á bara 4 próf eftir :haha: vááá hvað þessi önn er samt búin að vera fljót að líða. Ég er viss um að fólk sé ekki farið að átta sig á ástandinu :!: Ég meina Helena er að fara til Argentínu, Helen til Frakklands og Lilja til Braselíu og þ.a.l. verða þær ekki næstu tvær annir :| að hugsa sér vááá þær eiga einn virkann skóladag eftir !! Ekkert smá heppnar maður. Ef maður hefði nú kjark til að fara svona sem skiptinemi ... það væri geggjað gaman. Þetta gefur manni svo mikla möguleika. Maður lærir alveg nýtt tungumál og getur einhvernvegin séð hluti frá öðru sjónarhorni en maður er vanur... það er gott að þær skuli hafa kjar til að geta farið svona .. ég er eitthvað svo heimakær :| En nóg af AFS pælingum hjá mér.

/Björk ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 17:19:47 / björk

Menntaskóla party

Eins og líklega flestir vita mun Flass 104,5halda menntaskóla party á Brodway næstkomandi fimmtudag. Húsið mun opna kl. 21 en miðar eru seldir í Skór.is í Kringlunni og á Brodway... miðinn er á 1000kr en 1500kr við innganginn. Ég var svona að pæla hvort maður ætti ekki bara að skella sér. Þar er nú ekki oft sem manni gefst tækifæri til þess að fara á svona ball ... en á hinn boginn þá nenni ég ekki að fara á þetta ball ef þetta verður samkvæmi fyrir fullar ljóskur og klikkaðar gellur sem láta mann fá ör á ristina út af því að þær eru svo fullar að þær geta ekki staðið í lappirnar og traðka á manni í tvígang eins og maður sé gólfmotta :| ég lennt allavega í því á árshátíð Kaupás núna um daginn. En nóg af kvarti.

Annað mál er það að litli bróðir (ekkert það lítill 9. bekk) er í Danmörku með árgangnum sínum, fengu einhvern styrk frá Norrænafélaginu. Ég var svona að pæla ... ég var líka í Hlíðaskóla en við fengum aldrei að fara í neinar merkilegar ferðir ... fengum ekki einu sinni að fara í Þórsmörk. Skil það samt hálfgerlega ...vorum frekar erfiður árgangur :$ Útskrifarferðin var samt allt í lagi, vorum mest allan tíman á Akureyrar. Fórum í riverrafting, á Greifann og svo fengum við geggjað mikið af frjálsum tíma sem við notuðum til þess að dandalast í bænum í náttfötunum einu fata. Það var geggjað stuð! Það var bara einn galli.. kennararnir héldu virkilega að við værum 6 ára ... ég meina hverjum finnst gaman að fagna því að vera búin með samræmduprófin með því að fara í ratleik ? 

En nóg af mér ... í bili a.m.k.

Ég er hætt við að fara í Flass partýið :!:

/Björk 0


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2